Leita í fréttum mbl.is

Svona á að gera þetta

Boris Johnson og Óskar Bergsson eiga það greinilega sameiginlegt að vera stórhuga menn. Óskar er nú hins vegar heilt yfir traustari og betri maður held ég.

Hugmynd Framsóknarmanna um flugvöll á Lönguskerjum er langbesta hugmyndin sem fram kemur komið um Reykjavíkurflugvöll. Með henni losnar byggingarland í Vatnsmýrinni en flugvöllurinn er enn miðsvæðis.

Það er hins vegar sorglegt að horfa á þá sem kunna ekki að hugsa stórt tala hugmyndina niður bara vegna þess að hún passar ekki inn í þeirra þrönga kassa. Má ég þá frekar biðja um djarfa menn með stórar hugmyndir.

Verst við þetta allt er að ef hugmyndinni hefði verið hrint í framkvæmd þegar Framsóknarmenn í borginni settu hana fyrst fram þá væri búið að byggja þennan flugvöll í dag. Við værum laus við þetta vesen og völlurinn hefði hreint ekki kostað svo mikið.

Enn og aftur kemur í ljós að menn skyldu hlusta á Framsókn. Við kunnum að færa hlutina til betri vegar.


mbl.is Nýr flugvöllur í stað Heathrow?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Það er allt eins hægt að byggja hús á Lönguskerjum, ef menn á annað borð vilja útbúa landfyllingu þar.  Munurinn á Skerjafirði og Thames-ánni er saltið sem rýkur úr Skerjafirði.  Salt og ál er óheppileg blanda og eins og allir vita þá eru flugvélar flestar úr áli.

Ég hef einga skoðun á kostum og göllum Óskars Bergssonar, en mikið fannst mér sorglegt af honum að hoppa svona upp í hjá íhaldinu.  Íhaldið stofnuðu til meirihlutans með Ólafi F og það var rétt að íhaldinu leysti sjálft úr þeirri flækju sem það var búið að koma sé í.

Benedikt V. Warén, 21.9.2008 kl. 13:04

2 identicon

Já, og hvað á svo að koma í staðinn í Vatnsmýrina?

enn fleiri óspennandi búðir.. bara copy/paste af Norðlingaholtinu sem allar líta nákvæmlega eins út og Land Cruiser fyrir framan hvert einasta hús? hehe

jeeijj...

I I (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 13:44

3 identicon

Nokkrar stúdentaíbúðir í viðbót kæmu sér eflaust vel...

 Flugvöllurinn hefur almennt ekki angrað mig, ég bý rétt hjá og finnst þægilegt að vera 10 mínútur að labba í flug. En ég skil þá sem vinna og búa niður í bæ yfir að vera pirraðir þegar vélarnar koma, fjórar á hverri klukkustund, yfir Austurvöll. Þar glymur og drynur í öllu.

Zunderman (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband