Leita í fréttum mbl.is

Ég held mig við mína spá, en hækka um tvo

Í upphafi kjörtímabilsins var mikið talað um að það væru tvennar breytingar sem væru þegar ákveðnar. Björn Bjarnason myndi hætta og frændi hans, Bjarni Benediktsson kæmi í staðinn. Ég held að þetta verði niðurstaðan. Hin breytingin sem spáð var þá var að Sturla Böðvarsson myndi hætta á þingi og Jóhanna Sigurðardóttir yrði gerð að þingforseta. Þetta hef ég alltaf sagt að sé rangt. Ég spáði því þá og spái því enn að Sturla hætti, en Ingibjörg muni skáka Össuri í hvíldarembætti þingforseta.

Nú er komin upp að auki sú staða að helstu peningaköllum ríkisstjórnarinnar er varla sætt lengur. Ég spái því að Árni Mathiesen og Björgvin G. verði látnir víkja núna. En hver kemur í staðinn fyrir þessa garpa?

Eins og áður sagði spái ég því að Bjarni Benediktsson verði nýr dómsmálaráðherra. Nýr fjármálaráðherra held ég að verði Guðlaugur Þór Þórðarson en í hans stað verði Ásta Möller heilbrigðisráðherra. Landsbyggðin missir einn ráðherra og gengið verður fram hjá Arnbjörgu frænku minni þingflokksformanni. En konur fá einn ráðherrastól til viðbótar.

Í Samfylkingunni held ég að Gunnar Svavarsson fái tækifæri og verði gerður að iðnaðarráðherra. Ég hugsa að Hafnfirðingar verði ekki glaðir fyrr en það verður. Ég ætla svo að leyfa mér að spá því að gamli iðnaðarráðherrann, Jón Sigurðsson (krati) verði dubbaður upp í helminginn af sínu gamla ráðuneyti og verði gerður viðskiptaráðherra. Honum verði falið eitthvað ofurhlutverk í endurskipulagningu bankakerfisins enda litið á hann sem einhvers konar hálfguð í röðum Samfylkingarmanna.

Svona er spáin mín. Ef þetta er allt vitlaust megið þið hlæja að mér.


mbl.is Uppstokkun fyrir áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Bjarni inn, Björn út - það tel ég líka.

Árni út - augljóst mál. Annað hvort Kristján Þór inn eða þá hrókering, Guðlaugur færður í fjármálin .. ef þeir vilja styrkja hans stöðu. Ólíklegt að slík hrókering yrði fyrir landsfund en ef Guðlaugur verður varaformaður þá aukast líkur.

Björgvin hlýtur pottþétt að víkja. Þýðir ekki pólitísk endalok, heldur að hann axli pólitíska ábyrgð og getur snúið aftur seinna. En ætti þá að passa sig á að sýsla ekki með peningamálin.

Jón Sigurðsson krati er trúlega sterkasti kostur sem þeir eiga í viðskiptaráðuneytið.

Ingibjörg Sólrún á á brattann að sækja og þarf að sanna sig upp á nýtt. Hins vegar er enginn óskoraður leiðtogi til að taka við af henni og leiða Samfylkinguna. Meira að segja Jóhanna, þó hún sé vinsæl, þá er ég ekki viss um að hún sé jafnvíg Ingibjörgu sem formannsefni. Ég spái því að Ingibjörg sitji áfram og reyni að styrkja sig. Vandi að spá um hvernig henni tekst það, hún hefur hæfileika en þeir eru vannýttir í seinni tíð.

Einar Sigurbergur Arason, 15.12.2008 kl. 02:09

2 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

P.S. Smárök gagnvart Sollu:

  1. Annað hvort situr hún áfram, eða hættir sem formaður. Ef hún hættir, gerir hún það þá sjálviljug? Eða fær hún mótframboð? Álíta flokksmenn hennar það styrkja flokkinn að fara í innanflokkshasar nú? Ég hugsa ekki.
  2. Sjálf hugsa ég að hún vilji reyna til þrautar að bjarga pólitískum ferli sínum með því að leiða flokkinn í kosningum næsta haust, og inn í nýtt stjórnarsamstarf. Tekst það? Ég veit ekki. Draumur Samfylkingar hlýtur að vera að fá forsætisráðuneytið, ef þeir detta í þann lukkupott gæti hún náð að sanna sig upp á nýtt - ef hún er ekki útbrunnin í stjórnmálum.

Einar Sigurbergur Arason, 15.12.2008 kl. 02:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.