Leita í fréttum mbl.is

Nei hættið nú þessu væli

Êg var pirraður þegar ég horfði á leikinn. Fannst dómarinn (dómarínan?) dæma ójafnt og vítin smásmuguleg. Ég er líka Íslendingur og spenustigið hátt. Ég hélt sem sagt með öðru liðinu og því átti ég errfitt með að vera hlutlaus þegar kom að því að meta frammistöðu dómarans á meðan á leiknum stóð.

Ég jafnaði mig nú mjög þegar hún dæmdi líka víti á Frakkana og þegar ég var búinn að kæla mig niður þá er niðurstaðan sú að dómarinn var ekki lélegur. Það getur verið að sú lína sem hún lagði hafi hentað Frökkunum betur og hún hefði mátt taka harðar á bakhrindingum úti á velli, en dómarinn var ekki lélegur.

Þessu er fyrst og fremst beint til fjölmiðla. Ofuráhersla á dómarann kemur bara niður á vitrænni umræðu um leikinn og frammistöðu íslenska liðsins, sem var ekki alveg nógu góð. Við skulum ekki kenna dómaranum um það og ekki heldur velta okkur upp úr mistökunum heldur vonast eftir bættum leik á móti Norðmönnum (Norðkonum?) Hættið að væla!


mbl.is EM: Þær bestu eru ekki hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Tek undir þetta með þér Stefán Bogi - nú er nóg komið og þegar Klara er komin út úr skápnum og farin að kvarta líka þá líst mér ekki á þetta, einbeitum okkur að því sem okkur er ætlað og það er að spila fótbolta

Gísli Foster Hjartarson, 26.8.2009 kl. 14:52

2 Smámynd: Guðni Þór Björnsson

Fannst nú dómarinn ekki samkvæmur sjálfri sér, hvorugu liðinu til góða. Það má deila um báða vítaspyrnudómana gegn Íslandi en Frakkarnir voru bara betri(þennan daginn).

Guðni Þór Björnsson, 26.8.2009 kl. 14:54

3 identicon

Klara veit um hvað hún er að tala og þetta á við um umgjörð mótsins, ekki bara leikinn. Bestu stelpur Evrópu eiga skilið bestu dómara Evrópu.

Geir Hólmarsson (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 16:00

4 identicon

Fyrra víti Frakkanna var snemmbúin (eða síðbúin) jólagjöf frá dómaranum til þeirra.  Seinna vítið var klárlega víti og ekkert meira um það að segja.

En hvernig væri að hætta að tala um þetta andskotans ,,spennustig"??  Þetta orðskrípi fer svo í taugarnar á mér.  Það er ekkert til sem heitir spennustig.  Spennan er mikil - er nokkuð erfiðara að segja eða skrifa það??

Gudmundur (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.