Leita í fréttum mbl.is

Gleðilegt nýtt ár

Ég hef dvalist í höfuðstaðnum yfir hátíðarnar í góðu yfirlæti hjá tengdó. Hef svo oltið um á milli máltíða hjá mömmu og systkinum. Alveg svakalega ljúft og þægilegt.

Samband við umheiminn hefur verið í algjöru lágmarki. Hef þó aðeins stússað í einu og öðru eins og gengur.

Ég veit ekki hvað árið 2009 mun bera í skauti sér og hef í sannleika sagt sjaldan verið jafn óviss um það. En ég treysti því að það verði gott og skemmtilegt ár.

Ég vil þakka öllum vinum mínum, fólki sem ég hef fyrir hitt og öllu góða fólkinu sem ég vann með á árinu kærlega fyruir hið liðna og óska öllum í heiminum gleðilegs nýs árs.

Mín fyrstu verk á nýju ári voru að leggja fram breytingatillögur við lög Framsóknarflokksins. Þær fylgja hér með í skjölum. Önnur tillagan snýr að formannskjöri, hin að því að heimila öllum félagsmönnum í Framsókn að sækja flokksþing og kjördæmisþing.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Sæll Stefán Bogi

Þarf ekki að vera ákvæði til bráðabrigða um að lagabreytingin taki þegar gildi og gildi um væntanlegt formannskjör?

G. Valdimar Valdemarsson, 5.1.2009 kl. 11:37

2 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

þú misstir nú samt af dágóðri átveislu á Ölduslóðinni í gærkveldi.....

Sigríður Jósefsdóttir, 5.1.2009 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.