20.11.2008 | 11:52
Þættinum hefur borist bréf
Reykjavík, 20. Nóvember 2008
Seðlabanki Íslands
b/t Davíð Oddsson
Kalkofnsvegi 1
101 Reykjavík
Kæri Davíð
Þú þekkir okkur sennilega ekki, en okkur finnst við sannarlega þekkja þig. Þú hefur verið fjölskylduvinur hjá okkur flestum síðan fyrir fermingu og við vöndumst því að hlusta á þig tala og hlæja og okkur finnst alltaf jafn heimilislegt þegar þú birtist heima hjá okkur. Um tíma óttuðumst við að það yrði minna um heimsóknir frá þér vegna þess að þú fékkst sjálfum þér nýja vinnu. En viti menn, þú varst samt alltaf til í að kíkja við hjá okkur með eitthvað nýtt og spennandi í pokahorninu, nýja stýrivexti, óreiðumenn eða annað skemmtilegt.
Okkur langar endilega til að bjóða þér í mat. Það kreppir nú að vísu að hjá okkur, en aldrei svo að við getum ekki boðið vinum okkar í mat og átt skemmtilegt spjall. Það er bara svo margt að skrafa.
Við heyrðum þig nefnilega segja svo merkilega hluti á þriðjudaginn. Þú sagðir okkur frá því hvernig þú hefðir nú séð þetta allt saman fyrir og reynt að vara alla við. Hvernig stendur á því að enginn hlustaði á þig? Eða, hvernig stendur þá á því að í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika, sem kom út í maí, er ekki gerð grein fyrir þeirri stórhættu sem þú varst búinn að sjá. Hlustaði kannski enginn í Seðlabankanum á þig heldur? Við könnumst við þetta. Það er heldur ekkert oft hlustað á okkur Framsóknarmenn. En, hvað með vin þinn, Geir? Af hverju trúði hann þér ekki? Þú getur trúað okkur fyrir þessu, við skulum ekkert fara lengra með það. Við kjöftum ekki frá vinum okkar.
Annað sem við getum rætt er þetta með Bretana. Við urðum rosalega spennt þegar þú sagðist vita hvers vegna Bretarnir hefðu notað hryðjuverkalög á okkur Íslendinga. Urðum síðan pínu skúffuð þegar þú vildir ekki segja af hverju. Við þekkjum nefnilega fólk, nánar tiltekið 80.385 karla og konur, sem eru svo reið út af þessum prakkaraskap í Gordon Brown að þau skrifuðu sig á heimasíðu til að segja honum að við séum ekki hryðjuverkamenn. Þau langar örugglega öll að vita af hverju Gordon gerði þetta. Við vitum reyndar að svona merkilegir menn eins og þú vita fullt af hlutum sem venjulegt fólk má ekki vita. En þá var nú soldið ljótt af þér að segja okkur að þú vissir. Varstu kannski að monta þig?
Best fannst okkur samt að heyra að þú ætlar sko ekki að sitja sem bankastjóri ef í ljós kemur að þú hefur ekki staðið þig. Það er gott að vita að þú lætur þér ekki detta í hug að vera áfram bankastjóri ef sú staða kemur upp að enginn vill hafa þig. Það er karakter.
Það er svo margt, margt fleira sem þú sagðir í á þriðjudaginn sem okkur langar til að ræða við þig. Svo endilega láttu okkur vita hvenær þú getur kíkt við. Við verðum með opið hús fyrir þig og aðra áhugasama á Hverfisgötu 33 frá kl. 12 til 14 laugardaginn 22. nóvember nk. Fátt er betra en grjónagrautur og slátur í hádeginu.
Kær kveðja,
Ungir framsóknarmenn
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Bloggvinir
-
heiddis
-
maddaman
-
birkir
-
bjarnihardar
-
helgasigrun
-
hlini
-
toreybirna
-
agnarbragi
-
agnesasta
-
lubbiklettaskald
-
bokakaffid
-
davidorn
-
einarbb
-
einarfreyr
-
einarsmaeli
-
hjolagarpur
-
eyglohardar
-
fannygudbjorg
-
fufalfred
-
gesturgudjonsson
-
brekkukotsannall
-
neytendatalsmadur
- gladius
-
vefmundur
-
hugs
-
gudrunthora
-
gvald
-
hallurmagg
-
hannibalskvida
-
hl
-
hreinsamviska
-
isk
-
johannast
-
jonfinnbogason
-
skjalfandi
-
kristbjorg
-
solmundur
-
meinhornid
-
oddgeire
-
olafurjonsson
-
ruber
-
rosaadalsteinsdottir
-
trumal
-
salvor
-
suf
-
sjos
-
sigurdurarna
-
nr123minskodun
-
kaupfelag
-
stefanjonsson
-
vefritid
-
thjodarblomid
-
tharason
-
thorolfursfinnsson
Af mbl.is
Innlent
- Nokkur tonn innkölluð vegna gruns um salmonellu
- Landsbjörg vaktar ferðamann í beinu streymi
- Segir lífsstílsmóttöku HSU mikilvægt framtak
- Sprengjusérfræðingar streyma til landsins
- Talsvert minna vatn í lækjum og ám
- Fæðingarorlofsmál beint upp í Hæstarétt
- Engar frekari ákærur á leiðinni
- 80 sagt upp í hópuppsögnum í júní og júlí
- Hægri réttur gildir
- 78 sagt upp í hópuppsögnum í ágúst
Erlent
- Selenskí vonast til að funda með Trump
- Maður á níræðisaldri grunaður um morð
- Ráðherra viðurkennir mistök: Ég er í áfalli
- Handtekinn fyrir færslur um trans fólk
- Kristrún fundar í Kaupmannahöfn
- Selenskí: Árásir endurspegla refsileysi
- Skotnir til bana í bifreið í Gautaborg
- Myndskeið: Sökktu fíkniefnabáti með 11 um borð
- Stungnir til bana á veitingastað í Seúl
- Leiðtogar funda með Selenskí í Danmörku
Fólk
- Cardi B sýknuð af 24 milljónum dala skaðabótum
- Þórdís hlýtur styrk frá virtri stofnun
- Það verður mikið húllumhæ
- Stranger Things í tökum hér á landi
- Ég hafði aldrei áður tekið oxykódín
- Flestir menn á mínum aldri eru yfirleitt slæmir í baki eða hnjám
- Laufey á sína farsæld skuldlaust
- Ethan Hawke opnar sig um niðurlæginguna eftir skilnaðinn
- Salka Sól og Stefán Hilmars sungu með Bandmönnum og troðfylltu staðinn
- Segir fyrrverandi mest hataða mann á jörðu
Viðskipti
- Mæla með að halda bréfum í Íslandsbanka
- Breytingarnar lækki kostnað og auki tekjur
- Kaupir 80% hlut í Arctic Trucks í Noregi og Svíþjóð
- Mjólkurkýrin og áform ríkisstjórnarinnar
- Vopnakapphlaup um gervigreind
- Opinberir aðilar stýra allri samkeppni
- Samkeppni hins opinbera
- Ívera vill bæta við 1.400 íbúðum
- Reykjavík Fintech og Regus í samstarf
- Íslensk-kínverska viðskiptaráðið fagnar 30 ára afmæli
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.