9.2.2009 | 16:03
Ingimundur öðrum fyrirmynd
Ég hef ekki séð það bréf sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi seðlabankastjórum um daginn.
Ég verð hins vegar að segja að mér þykir miður ef það er rétt sem kemur fram í bréfi Ingimundar Friðrikssonar fyrrverandi seðlabankastjóra að þar hafi verið vegið að starfsheiðri hans og látið að því liggja að hann hafi verið skipaður vegna pólitískra tenginga.
Staðreyndin er sú að hann var skipaður í stöðuna eftir að Framsóknarflokkurinn hafði séð að sér með pólitískar skipanir í bankann og afþakkað sína hefðbundnu bankastjórastöðu.
Þarna gekk Framsóknarflokkurinn á undan með góðu fordæmi. Það er óneitanlega athyglisvert að sá sem fyrstur var skipaður án tilnefningar frá stjórnmálaflokki skuli jafnframt vera fyrstur til að sýna þann dug að setja hagsmuni þjóðarbúsins fram fyrir sína eigin og stíga til hliðar, sennilega síst verðskuldað þessara þriggja manna. Það gerir hann að meiri manni í mínum augum.
Það að bankastjórarnir þurfi að allir að víkja er ekki endilega sanngjarnt. En það er nauðsynlegt til að endurvekja traust á bankanum eftir áratuga ítök stjórnmálaflokkanna í stjórnun hans. Því fyrr sem við setjum punkt fyrir aftan það óheillafyrirkomulag, því betra.
Bréf bankastjóranna birt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Bloggvinir
- heiddis
- maddaman
- birkir
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- toreybirna
- agnarbragi
- agnesasta
- lubbiklettaskald
- bokakaffid
- davidorn
- einarbb
- einarfreyr
- einarsmaeli
- hjolagarpur
- eyglohardar
- fannygudbjorg
- fufalfred
- gesturgudjonsson
- brekkukotsannall
- neytendatalsmadur
- gladius
- vefmundur
- hugs
- gudrunthora
- gvald
- hallurmagg
- hannibalskvida
- hl
- hreinsamviska
- isk
- johannast
- jonfinnbogason
- skjalfandi
- kristbjorg
- solmundur
- meinhornid
- oddgeire
- olafurjonsson
- ruber
- rosaadalsteinsdottir
- trumal
- salvor
- suf
- sjos
- sigurdurarna
- nr123minskodun
- kaupfelag
- stefanjonsson
- vefritid
- thjodarblomid
- tharason
- thorolfursfinnsson
Athugasemdir
Bréf Davíðs til Sverris Hermannssonar 21. febrúar 1996.
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=402640
Dabbi hefur nú stundum verið orðljótur í sínum bréfum
Tómas (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 16:19
Þið framsóknarmenn eruð duglegir að klappa ykkur á öxlina víst enginn annar vill gera það. Framsóknarflokkurinn er mesti spillingarflokkur Íslands, hvað með Tómas Árnason, Steingrím Hermannsson og Finn Ingólfsson voru þeir ekki örugglega í framsókn ?
Skarfurinn, 9.2.2009 kl. 16:27
Bréf Jóhönnu til bankastjórana svohljóðandi:
Ljóst er að traust manna á fjármalakerfi Íslendinga hefur beðið gífurlegan hnekki. Á það jafnt við um fjármálafyrirtækin sem starfað hafa á markaðnum og opinbera aðila, ráðuneyti og stofnanir sem hlutverk hafa haft við stjórnun og eftirlit með fjármálakerfinu og er Seðlabanki Íslands þar ekki undanskilinn.
Umtalsverðir þjóðhagslegir hagsmunir eru fólgnir í að það takist að endurvekja traust a fjármalakerfinu og ber ríkisstjórninni skylda til að skoða allar mögulegar leiðir i því sambandi.
Hvað Seðlabanka Íslands varðar er það mat ríkisstjórnarinnar að til að endurreisa traust á bankanum sé nauðsynlegt að gera tilteknar breytingar á stjórnskipulagi Seðlabankans. Mun ríkisstjórnin a næstu dögum leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands i þessu skyni.
Markmið þeirra breytinga sem lagðar verða til eru að endurvekja traust með því að tryggja að i bankanum sé starfandi faglega yfirstjórn. Þannig verði dregið úr efasemdum um að faglega sé staðið að ákvörðunum Seðlabankans.
Meginbreytingin samkvæmt frumvarpinu felur í sér að bankastjórn Seðlabanka Íslands er lögð niður og þar með embætti þriggja bankastjóra sem sæti eiga i stjórninni, þ.m.t. embætti formanns bankastjórnar, en i stað bankastjórnarinnar verði skipaður einn faglegur seðlabankastjóri, að undangenginni auglýsingu, sem stýrir bankanum.
Ákvarðanir i peningamálum eru fyrst og fremst faglegt viðfangsefni sem krefst sérfræðiþekkingar i þjóðhags- og peningahagfræði. Þetta sjónarmið er viðurkennt i seðlabönkum um allan heim og kemur gleggst fram í því að í flestum löndum eru menntaðir hagfræðingar i embættum seðlabankastjóra.
Þau pólitísku sjónarmið sem oft virðast hafa vegið þungt við skipun bankastjóra i bankastjórn Seðlabanka Íslands sameinast ekki þeim faglegu sjónarmiðum sem hér um ræðir og eru til þess fallin að rýra traust a bankanum. Með þeim hæfniskröfum sem gerðar eru til seðlabankastjóra í frumvarpinu og þeirri lagaskyldu að auglýsa beri stöðu seðlabankastjóra er leitast við útiloka að slík sjónarmið geti í framtíðinni orðið ráðandi við skipun í embætti seðlabankastjóra.
Verði framangreint frumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum mun embættið sem þér gegnið verða lagt niður. Fer þá um starfslok yðar hjá Seðlabankanum i samræmi við 34. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Með hliðsjón af því og þeim markmiðum sem liggja að baki frumvarpinu og lýst hefur verið vill ríkisstjórnin kanna hvort vilji sé til þess af yðar hálfu að biðjast lausnar frá embætti nú þegar og leggjast þannig á sveif með stjórnvöldum í viðleitni þeirra til að endurvekja trúverðugleika og traust á Seðlabanka Íslands enda megi ætla að mannabreytingar einar og sér geti verið til þess fallnar.
Verði það niðurstaða yðar að biðjast lausnar frá embætti er yður jafnframt boðið að ganga til viðræðna við stjórnvöld um starfslokagreiðslur er taki mið af þeim réttindum sem þér eigið samkvæmt 34. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Forsætisráðherra mun þá setja sérfræðinga tímabundið í embætti bankastjóra Seðlabanka Íslands þar til nýr seðlabankastjóri hefur verið skipaður á grundvelli auglýsingar i samræmi við þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á lögum um Seðlabanka Íslands.
Þess er óskað að svar yðar berist forsætisráðuneytinu sem fyrst, eigi síðar en 5. febrúar nk. Eftir sem áður má vænta þess að fljótlega og jafnvel fyrir þann tíma verði fram komið og afgreitt frá ríkisstjórn frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka í samræmi við ofangreint.
er (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 17:07
Hún er nú með þessu bréfi að segja að hún og aðrir ráðherrar ættu að segja af sér einnig, ætli hún hafi sent sjálfri sér bréf?
Margrét Elín Arnarsdóttir, 9.2.2009 kl. 17:36
Skarfur. Stefán var einmitt að segja að Framsókn hefði hætt á þeirri braut sem þú varst að lýsa með nafnaupptalningu þinni.
Gestur Guðjónsson, 10.2.2009 kl. 11:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.