Leita í fréttum mbl.is

Og hvað svo?

Obama vann og það er nú gott. Margir vildu mála Obama sem einhvers konar fagurgalamann. Mann sem hefði fagrar hugsjónir en myndi eiga í erfiðleikum í erfiðum heimi harðrar pólitíkur. En það sem heillar mig mest við manninn er að hann virðist hafa bæði.

Obama er alinn upp í einum harðasta stjórnmálaskóla Bandaríkjanna, Illinois fylki. Þar vandist hann því að gera út af við andstæðinga sína og keyra sín mál í gegn af fullri hörku. Þetta eru eiginleikar sem menn þurfa að hafa til að bera ef menn ætla að koma breytingum á.

Þessi harka Obama mun líka sýna sig vil þegar kemur að því að velja samstarfsmenn. Og tónninn hefur þegar verið sleginn. Samkvæmt ABC fréttastofunni er þegar búið að bjóða Rahm Emanuel að vera starfsmannastjóri Hvíta hússins.

Rahm þessi stýrði „hernaði“ Demókrata 2006 þegar þeir náðu meirihlutanum í fulltrúadeild þingsins. Þessi lýsing á þeirri baráttu er ansi hreint mögnuð.


mbl.is Bush fer fögrum orðum um Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Gaman að Obama skyldi vinna þetta, og spennandi verður að sjá hvernig honum gengur. Hann hefur alla vega virkað með hugsjónirnar á réttum stað.

Einar Sigurbergur Arason, 6.11.2008 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband