Leita í fréttum mbl.is

Handtaka og ákæra núna!

Þetta er náttúrulega gjörsamlega óþolandi linkind í þágu þessara raðlögbrjóta. Þetta gengur ekki lengur.

Í fyrsta lagi er ekki nokkur leið að átta sig á því fyrir hvað þessir menn standa, en þó virðast þeir vilja að löggjafinn dansi í hringi til þess að sinna sérhagsmunum vörubílstjóra. Engin stétt á kröfu til þess.

Í öðru lagi þá er ekki nokkur leið að hitta fulltrúa þessara manna á fundi. Þeir eiga sér ekki fulltrúa, þetta er einhvers konar stjórnlaus hópur í frekjukasti. Stjórnvöld hafa ekkert við þennan hóp að ræða. Þeir eru hvorki fulltrúar atvinnubílstjóra né almennings.

Í þriðja lagi þá hafa bæði fjármála- og samgönguráðherra, þrátt fyrir það sem að ofan greinir, lýst yfir vilja til viðræðna. Hvaða andskotans frekja er það þá að halda áfram aðgerðum án þess að ræða við ráðamenn, sem nota bene hafa niðurlægt sjálfa sig með því að segjast vilja tala við hópinn.

Ég krefst þess að lögregla leysi þessi mótmæli upp og ákæri þátttakendurna, þeir eru að brjóta lög fyrir allra augum og það á ekki að líðast. Saving Iceland liðum var ekki sýndur neinn skilningur, enda áttu þeir hann ekki skilið, frekar en þessir menn. 


mbl.is Buðu lögreglu upp á kaffi og vöfflur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ótrúlegt að heyra í þér. Það er ekkert athugavert við mótmæli þeirra og ef lögreglan  tæki upp á því að kæra þessa blessuðu menn, þá er eitthvað stórfenglegt að. Ég vona að þeir haldi þessu áfram, þessvegna í mörg ár, þangað til stjórnvöld afnema þessa andskotans tolla sína

Pétur Sigmars (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 18:59

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Mér finnst að þú ættir að skammast þín fyrir að setja þetta inn á vefinn. Þvílík fásinna

Guðborg Eyjólfsdóttir, 3.4.2008 kl. 19:48

3 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Æi ég tók ekki eftir því fyrr en of seint að þú ert framsóknarmaður. Það hlaut að vera, greijið mitt.

Guðborg Eyjólfsdóttir, 3.4.2008 kl. 19:51

4 identicon

Já ég segi það líka  .

Það er auðséð að þú ert  FRAMSÓKNARMAÐUR

þvílk heimska .

Vally (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband