Leita í fréttum mbl.is

Eru menn að tapa sér???

Hvaða brjálæðislega og undarlega hatur á Framsóknarflokknum er að leysast hér úr læðingi í umræðunni?

Framsókn setti í upphafi 3 eðlileg og sanngjörn skilyrði fyrir stuðningi sínum við stjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Þessi skilyrði voru að flestu leyti endurómur af því sem þjóðin hefur krafist. Aðgerðir strax til bjargar heimilum og fyrirtækjum og kosningar sem allra fyrst.

Nú reynir Framsóknarflokkurinn að gæta þess að þessi skilyrði séu uppfyllt og þá fara bloggheimar á hliðina í brjálæði.

Framsóknarflokkurinn er að gæta þess að þessum kröfum fólksins í landinu verði örugglega fylgt eftir í stjórnarsamstarfinu. Please give us a break! Það þarf svona tvo daga til að kippa þessu í liðinn ykkur öllum til hagsbóta.

Framsókn er ekki að hlaupast undan merkjum. Við erum þvert á móti að standa við orð okkar.


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst með ólíkindum hvernig þetta hefur þróast. Málþóf..Flokkapólitík,einhverskonar refskák sem enginn vill og svo kannski annað og meira. Vil framsóknarmanninum nýja allt gott. En þjóðin bíður á hliðarlínunni. Tíminn er að renna út, svo sannarlega.

Maddama (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 01:47

2 Smámynd: Johann Trast Palmason

Forystumönnum VG og Samfylkingarinnar þykir sem Framsóknarflokkurinn hegði sér eins og hann eigi beina og fulla aðild að ríkisstjórninni en hafi ekki heitið henni hlutleysi á þingi. Flokkarnir í stjórnarmynduninni hafi orðið við óskum Framsóknarflokksins

Þeim þykir sem Framsóknarflokkurinn hafi misskilið hvað í því felist að sýna minnihlutastjórn hlutleysi og hafi í raun tekið völdin um stefnuskrá og tímasetningar.

Eina leiðin til þess að koma málinu aftur á réttan kjöl sé að forseti Íslands kalli Sigmund Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, á sinn fundi og gangi úr skugga um það í eitt skipti fyrir öll hvort til sér annar meirihluti á þingi en sá sem fólst í samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins.

Johann Trast Palmason, 31.1.2009 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.