Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
23.10.2009 | 11:52
Mjög þroskað
LÍÚ lýsir ráðherra með lagi Þursaflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2009 | 10:29
Ekki gleyma genginu
Mér fannst þessar tölur hærri en mig minnti að ég hefði heyrt áður um launatölur í fótboltanum í Skandinavíu.
Þá mundi ég að gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri norsku hefur hrapað. Það útskýrir sumar tölurnar. En það er náttúrulega ágætt fyrir þá sem afla tekna erlendis og eyða þeim hérlendis.
Bara ágætt að hafa í huga að í núverandi árferði eru launatölur sem þessar dálítið afstæðar.
Veigar og Ólafur fengu 4,5 milljónir kr. á mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2009 | 11:38
Áminning
Þessi niðurstaða er þörf áminning til þeirra sem talað hafa fjálglega um hina svokölluðu dómstólaleið í Icesave-málinu. Björninn er ekki unninn þó menn komi málum fyrir dómstóla. Menn þurfa að hafa góðan málstað að verja lagalega og þurfa að vinna málin.
Ég held að Íslendingar uppfylli hvorugt þessara skilyrða.
Kaupþing tapaði máli gegn Bretum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2009 | 14:54
Í ljósi nýfenginna vinsælda
Kæra Jóhanna (eða Hrannar, kemur kannski á sama stað niður...eða hvað? Við byrjum aftur...)
Kæri Jóhrannar
Þar sem ég get nú talið yður á meðal dyggra lesenda þessarar síðu ætla ég að nota tækifærið og koma til skila nokkrum punktum sem ég held að þér hefðuð gott af að heyra. Ég vona að þeir eigi eins greiða leið að hjarta yðar og mitt fyrra blogg.
1. Þjóðin þarf forystu, sýnileiki leiðtoga er nauðsynlegur og við þurfum öll að heyra einhvern stappa stálinu í okkur öðru hverju. Þetta getur enginn utan yðar gert þannig að mark sé að. Af hverju eruð þér ekki að gera þetta? Það að fara undan fjölmiðlum í flæmingi og segja helst ekki aukatekið orð nema tilneyddir er ekki til þess fallið að hvetja þjóðina til dáða í endurreisninni.
2. Við þurfum að kynna og verja okkar málstað erlendis. Af hverju hafið þér ekki beðið utanríkisráðherra (þennan skrýtna með kragaskeggið) um að beita utanríkisþjónustunni af fullum krafti í þetta verkefni. Utanríkisþjónustan hefur verið efld til muna á undanförnum árum til þess að geta brugðist við svona aðstæðum. Það vantar bara pólitísku forystuna. Ef staðan er orðin sú að óbreyttir þingmenn eru duglegri við utanlandsferðir og fundi til að verja þjóðina en ráðherrar og sendiherrar þá er bara eitthvað mikið að.
3. Við þurfum samheldni. Á tyllidögum fyrir kosningar var talað um að þessi fordæmalausa staða kallaði á víðtækari samstöðu stjórnmálamanna en áður hefði þekkst. Þjóðin brást við með því að kjósa til forystu tvo mestu þverhausa sem fyrirfundust í íslenskri pólitík. Þér hafið, kæri forsætisráðherra, ekki verið þekktir að mikilli lipurð í samskiptum við aðra stjórnmálamenn í gegnum tíðina. Samt tókuð þér að yður forystu á tímum þar sem stefnt var að áður óþekktri samstöðu. Afleiðingin er sú að við komumst ekki upp úr skotgröfum deilna og þér hafið varla náð að halda samstarfsflokknum um borð, hvað þá meira. Þér eruð komnir á endastöð.
4. Að mati undirritaðs er aðeins ein leið út úr þessari stöðu. Mynda þarf þjóðstjórn með aðkomu a.m.k. fjögurra stærstu flokkanna á þingi. Til þess að það megi verða þurfa allir flokkar að vera tilbúnir að gera gríðarlegar málamiðlanir og það er ekki pláss fyrir einstrengingshátt. Sennilega yrði það að falla í hlut hins þverhaussins, hæstvirts fjármálaráðherra, að leiða slíka stjórn, enda hefur hann ólíkt forsætisráðherra sýnt viðleitni til að sigla milli skers og báru og leiða þjóðina í höfn þó svo að stýra þurfi eftir öðrum leiðum en hann hefur áður talað fyrir.
Að þessu sögðu kveð ég yður og óska yður ánægjulegra daga á eftirlaunum.
Kveðja
Stefán Bogi (Þú manst ;o) framsóknarbloggarinn)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2009 | 13:52
Óviðeigandi
Það er ágætt að leggja land undir fót og ræða við frændur okkar á Norðurlöndunum. Slíkt er bara gott, hvar í flokki sem menn standa.
Það er gott að leita nýrra leiða og valkosta. Slíkt er til marks um víðsýni og hliðlæga (lateral) hugsun.
Það að lýsa því yfir í fjölmiðlum að við getum vandræðalaust sótt um 2.000 milljarða lán frá Norðmönnum, eftir samtal við einn frekar sérvitran þingmann er pólitískur barnaskapur. Slíkt er ekki fallið til þess að leysa neinn vanda.
Það að bera á borð fyrir almenning slúðursögur og samsæriskenningar um að forsætisráðherra þjóðarinnar sé af annarlegum hvötum að vinna gegn lánveitingu getur í besta falli kallast óviðeigandi.
Slíkt er einkum og sér í lagi til þess fallið að setja niður virðingu þeirra sem þetta gera og að verða félögum þeirra og stuðningsmönnum til minnkunar.
Ummælin fráleitur þvættingur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Bloggvinir
- heiddis
- maddaman
- birkir
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- toreybirna
- agnarbragi
- agnesasta
- lubbiklettaskald
- bokakaffid
- davidorn
- einarbb
- einarfreyr
- einarsmaeli
- hjolagarpur
- eyglohardar
- fannygudbjorg
- fufalfred
- gesturgudjonsson
- brekkukotsannall
- neytendatalsmadur
- gladius
- vefmundur
- hugs
- gudrunthora
- gvald
- hallurmagg
- hannibalskvida
- hl
- hreinsamviska
- isk
- johannast
- jonfinnbogason
- skjalfandi
- kristbjorg
- solmundur
- meinhornid
- oddgeire
- olafurjonsson
- ruber
- rosaadalsteinsdottir
- trumal
- salvor
- suf
- sjos
- sigurdurarna
- nr123minskodun
- kaupfelag
- stefanjonsson
- vefritid
- thjodarblomid
- tharason
- thorolfursfinnsson