Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Frábær saga

Ég hef ekki orðið svo frægur að sjá myndina en bækurnar hef ég gluggað í og þetta er mögnuð og merkileg frásögn. Eitt besta dæmi sem ég hef séð um það hversu myndasögur geta verið áhrifaríkur miðill.

Það er svo sannarlega sorglegt að í einhverjum ríkjum eigi að banna myndina, en kemur svo sem ekki á óvart. Sagan er alls ekki áróður gegn írönskum stjórnvöldum sem slík heldur meira hreinskilin frásögn manneskju sem upplifði byltinguna sem barn og ber saman ástandið fyrir og eftir. Mann grunar að ótrúlega margir Íranir líti hlutina sömu augum og aðalpersónan, en því miður virðist kúgunin hafa náð tökum á samfélaginu og frjálslyndari raddir fá ekki að heyrast. 

Í sögunni kemur líka fram hversu erfitt það er að búa í Evrópu þegar maður kemur frá öðrum menningarheimi og allt er þetta umfram annað saga aðalpersónunnar og hvernig hún tekst á við breytingarnar í umhverfi sínu.

Persepolis er ein af þessum sögum sem allir ættu að kynna sér, hvort sem er í bókar- eða filmuformi. Það væri margt verra hægt að gera en að sýna hana eða gera að lesefni í skólum í tengslum við samfélags- og félagsfræði.


mbl.is Frönsk teiknimynd bönnuð í Líbanon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heima er best

Þá er maður kominn aftur úr snemmbúnu páskafríi fyrir austan. Búið að ferma tvo af ættingjunum og af því tilefni mikið borðað og talað við frændur og frænkur sem maður hittir ekki á hverjum degi.

Það lá fyrir að ég og Heiðdís myndum kíkja eftir íbúð í þessari ferð, og við gerðum gott betur en það. Við gerðum tilboð í íbúð, fengum gagntilboð og samþykktum það. Svo að því gefnu að íbúðalánasjóður klikki ekki þá erum við orðin íbúðareigendur.

Íbúðin er mjög fín, alveg ný og með gestaherbergi. Stefnt er að flutningum í sumar. Að auki þá skrifaði ég undir samning um að vera aðstoðarmaður Birkis Jóns Jónssonar bloggvinar míns. Þannig er ég kominn með einhverja vinnu fyrir austan. Er svo að leita mér að annarri vinnu með þessu. Þið látið mig bara vita ef ykkur dettur eitthvað í hug.

Svona geta stórir hlutir gerst hratt. Það finnst mér skemmtilegt. 


Ef það gætu það nú allir

Berlusconi segir fólki að giftast milljónamæringum, þannig geti það leyst öll sín vandamál. Það er bráðmerkilegt að stjórnmálamenn geti verið svo furðulega þenkjandi að þeim finnist í lagi að láta annað eins út úr sér.

Þetta virðist einkenna hægrimenn. Geir H. Haarde lagði það til við þá sem áttu í erfiðleikum með að eignast húsnæði að þeir slepptu því bara. Ekki kaupa þér húsnæði sagði maðurinn. Spurningin er, hvar eiga menn þá að búa?

Ég ætla hvorugum þeirra að vera svo veruleikafirrtur að þeir hafi meint það sem þeir sögðu. En óvirðingin við raunveruleg vandamál venjulegs fólks skín úr hverju orði. 


mbl.is Gifstu milljónamæringi segir Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff þetta hljómar ekki vel

Ef þessi fyrirsögn væri einhvers staðar annars staðar en á íþróttasíðum þá væri um miklu meira spennandi frétt að ræða.

En hvað veit maður hvað þessir United-menn hugsa og gera...


mbl.is Ferguson spenntur fyrir 17 ára strák
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha?

Gaf Björn Bjarnason lögreglunni á Vestfjörðum prívat og persónulega 13 tetrastöðvar? Er það ekki eitthvað skrýtið? Er það ekki til marks um fullkomna uppgjöf í málaflokknum, ef menn geta ekki tryggt lögreglumönnum nauðsynlegan búnað en fara í eigin vasa rjóðir af skömm yfir framgöngu ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðuneytisins?

Eða getur hugsast að enn séu menn að ruglast og persónugera eitthvað sem kemur úr sameiginlegum sjóðum okkar. Það er nú ágætt að Björn hugsar fallega til lögreglunnar á Vestfjörðum, en fyrr má nú vera sleikjuskapurinn ef honum eru persónulega færðar þakkir fyrir að útdeila af náð og miskunn gæðum, eða öllu heldur nauðsynlegum búnaði, sem er greitt fyrir af fjárlögum.

Ég vil fá nánari skýringar á þessu.


mbl.is Ráðherra færði lögreglunni á Vestfjörðum tetrastöðvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvar verður hann staðsettur?

Eitthvað segir mér að það muni verða í Reykjavík. Umræða Samfylkingarinnar um störf án staðsetningar og fjölgun opinberra starfa úti á landi með þeim hætti var ekkert annað en ómerkilegur fagurgali. Þvert á móti er nú verið að taka starf sem ætti vel heima annað hvort á Höfn í Hornafirði eða á Egilsstöðum og staðsetja það í Reykjavík, undir formerkjum starfs án staðsetningar!

Umhverfisráðherra er þegar búinn að flytja eitt starf hjá Veiðistjóraembættinu frá Akureyri til Reykjavíkur, og nú bætist þetta við. Það, auk grímulauss áróðurs ráðherrans gegn olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum, gerir það að verkum að ekki er hægt að ímynda sér annað en að ráðherranum sé ekki bara sama um landsbyggðina eins og meginþorra Samfylkingarmanna, heldur sé hún beinlínis fjandsamleg landsbyggðinni.  


mbl.is Ráðinn framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þriggja manna maki

Hvað getur maður sagt. Einn hættir og þrír skipaðir í staðinn. Ingibjörg Sólrún hefur sagt skilið við þá stefnu sem Valgerður Sverrisdóttir markaði, þ.e. að skipa ekki nýja sendiherra. Eftir skammarlega framgöngu Davíðs Oddssonar í utanríkisráðuneytinu, þar sem hver vildarvinurinn eftir annan voru skipaðir sendiherrar, þá lá fyrir og liggur enn fyrir að of margir sendiherrar eru í utanríkisþjónustunni.

Nú hefur Ingibjörg Sólrún fjölgað þeim um tvo og skipar að auki aflóga stjórnmálamann í embætti. Eitthvað segir mér að það hefði heyrst hljóð úr horni ef Valgerður Sverrisdóttir hefði gert þetta sama. Valgerður er hins vegar með bein í nefinu og tók ekki þátt í þessari vitleysu.

Eitthvað segir mér að það verði heldur ekki vandamál að skipa nýja sendiherra í stað þessara fimm til sjö sem eru víst að hætta á næsta ári. Og eitthvað segir mér að við munum sjá að kratarnir hafi engu gleymt þegar kemur að því að skipa sína menn í sendiherrastöður, rétt eins og þær stöður sem þeir hafa þegar fyllt af sínu fólki á þessu ári sem þeir hafa verið í ríkisstjórn.


mbl.is Sigríður Anna skipuð sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottir strákar

Verst að ég náði aldrei að sjá þá á sviði. Miðað við það sem ég heyrði frá þeim var þetta hins vegar ótrúlega flott hljómsveit. Það er hins ekki það sem mér finnst merkilegast við þá. Miðað við viðtalið sem ég las við þá þegar þeir tilkynntu ákvörðunina að hætta virðast þessir strákar vera með hausinn alveg rétt skrúfaðan á.

Þeim fannst þetta bara ekki alveg vera að ganga og vildu fá að vera strákar í friði. Kannski klára menntaskóla og svona. Þeim fannst hlutirnir vera farnir að þróast í einhverja átt sem þeir voru ekki sáttir við og ákváðu bara að slá botninn í þetta. Minni menn hefðu kannski látið undan pressunni og voninni um að ,,meika´ða", eins ofnotaður og sá frasi er nú annars, og haldið áfram að spila fyrir einhvern annan en sjálfa sig. Það hefði ábyggilega endað með ósköpum. En þeir eru flottir tónlistarmenn og geta tekið upp þráðinn aftur.

Þá er komið að því að finna sér nýja unghljómsveit til að halda upp á. Eðli málsins samkvæmt fylgist maður þá með Músíktilraunum. Og að sjálfsögðu held ég staðfastlega með hljómsveitinni Spítala Alfreð. Ég meina, er annað hægt!? Ég hef reyndar aldrei heyrt þá spila, en nafnið tryggir gæðin...


mbl.is Jakobínarína hætti með látum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hlutverk dómara

Eins og stundum áður þá næ ég að vera bæði fullkomlega sammála Jóni Steinari og fullkomlega ósammála honum í sömu andrá.

Það að almenningur þekkir ekki dómara og að þeir fela sig nánast fyrir fjölmiðlum er ekki til þess fallið að skapa traust á dómstólunum. Það er hins vegar alveg fráleitt að hugsa sér það að dómarar þurfi að sitja undir yfirheyrslum og pressu um að útskýra niðurstöður sínar aftur og aftur í fjölmiðlum. Réttarkerfi okkar, eins og annarra þjóða byggir á því að niðurstaða í dómsmáli sé endanleg. Það gengur engan veginn að mál séu flutt í fjölmiðlum, ekki áður en þau eru flutt í dómi og alls ekki eftir á. Fyrir svo utan að dómarar gefa alltaf út ítarlegan rökstuðning fyrir niðurstöðum sínum. Sá rökstuðningur heitir dómur og er birtur opinberlega. Ég hvet fólk til þess að lesa dóma áður en það fer að kvarta yfir því að þeir séu óskiljanlegir. Oftast eru forsendur dómara mjög skýrar þar.

Dómarar eru auk þess ekkert einir um það að geta tjáð sig um dóma eftir að þeir falla. En hin fáranlega vanhæfa fjölmiðlastétt þessa lands gerir aldrei neitt í því að leita til fagmanna um útskýringu á dómum. Blaðamenn tjá sig undantekningalítið af yfirgripsmikilli vanþekkingu um dómsniðurstöður og með það eitt að markmiði að skapa sem mesta úlfúð, en ekki að leiða hið sanna í ljós.

En þó dómarar ættu ekki að tjá sig um dóma sína eftir á, þá mættu þeir hins vegar vera mun virkari í lögfræðilegri umræðu á Íslandi. Það er alveg skelfilegt, hjá þjóð sem hefur stundað það umfram aðrar þjóðir að setja virtustu fræðimenn á sviði lögfræði í stóla hæstaréttardómara, að þessir sömu fræðimenn hætta alveg að skrifa og tjá sig um lögfræði. Ég vil sjá að hæstaréttardómarar gefi frá sér fræðirit um lögfræði, tali á málþingum og séu virkir í fræðilegri umræðu. Raunar hugnast mér vel að veita þeim hreinlega reglulega rannsóknaleyfi til að sinna þessum þætti.


mbl.is Dómarar tjái sig opinberlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æi nei

Miðað við það sem ég hef kynnt mér, þá held ég að þau tvö yrðu hreint ekki gott framboðspar. Clinton gerir út á það að vera reynsluboltinn, kann öll trixin og er engin jómfrú þegar kemur að pólitískum leðjuslag. Obama vill hefja sig upp fyrir hið hefðbundna pólitíska argaþras og koma inn með ferska vinda. Að mínu mati myndi það eyðileggja ímynd hans að vinna með Clinton-klíkunni. Ég held að Bandaríkin þurfi á forseta að halda sem reynir að sameina þjóðina og heitir hvorki Clinton né Bush.

Auk þess held ég að það sé engin alvara í þessu hjá Hillary. Hún er að reyna að sannfæra óákveðna sem hrífast þó af Obama um að þeir geti fengið bæði með því að kjósa hana og hún muni bjóða Obama varaforsetann. Ég held hins vegar að hún hafi engan áhuga á að hafa varaforsetaefni sem gæti skyggt á hana. Evan Bayh verður varaforsetaefni Clinton ef hún vinnur, ég er nokkuð sannfærður um það. Mér líst hins vegar betur á að Obama vinni þetta og taki hershöfðingjann Wesley Clark með sér. Það yrði sterkt par.


mbl.is Útilokar ekki framboð með Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband