Færsluflokkur: Bloggar
15.1.2009 | 11:29
Skáldskapargáfan
Ég hef stundum glímt við skáldagyðjuna. Það hafa einnig margir sem ég þekkti gert og það með góðm árangri.
Hrafnkell Lárusson stórvinur minn er einn af þeim. Á blogginu sínu birti hann faglega gjörðan afleggjara af kvæði Steins Steinars, verkamaður.
Kvæðið heitir Bankamaður.
Hann var eins og hver annar bankamaður,
í hreinum fötum og dýrum $kóm.
Hann var aldrei hryggur en jafnan glaður
og hyllti bankann $em helgidóm.
Kvæðið er langt og stórmskemmtilegt og má lesa í heild sinni hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2009 | 15:16
Virðulegur Vefritspenni
Ég er einn af þeim sem hef þann heiður að skrifa reglulega pistla á hið magnaða vefrit, Vefritið. Jah, ég segi reglulega en raunar hef ég ekki staðið mig sem skyldi eftir að ég flutti austur. En nú er búið að bæta úr því.
Þeir sem þarna skrifa eru ungt félagshyggufólk sem hefur margt gagnlegt fram að færa. Það er þrekvirki að halda þessum vef úti og eiga aðstandendur hans allt gott skilið, þó þeir séu dálítið flokkavilltir....;o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2009 | 10:20
Já hvers vegna taka áhættuna?
Þetta þótti mér fyndið. Þeir verða ekki sakaðir um að vera húmorslausir.
Maður þarf ekki að vera einhver sérstakur stuðningsmaður klámiðnaðarins til að glotta út í annað og jafnvel hlæja upphátt.
Þetta er ágætt innlegg í umræðu um ríkisstyrki og framlög til einstakra atvinugreina umfram aðrar.
Bíð eftir því að Geiri á Goldfinger fari fram á það við bankana að gjaldeyrisskiptasamningar verði gerðir upp í anda þess sem útgerðarfyrirtæki hafa farið fram á.
Ríkisstyrkt klám? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2009 | 12:41
Magn, gæði og gullinn meðalvegur
Vildi bara vekja atygli á því hvaða flokkur virðist feta hinn gullna meðlaveg þarna sem og svo víða annars staðar. Framsóknarmenn tala hvorki of stutt né of lengi og er það til fyrirmyndar.
Vildi líka minna á það að það er ekki magn heldur gæði sem ráða úrslitum. Höskuldur Þórhallsson var einmitt kjörinn besti ræðumaður eldhúsdagsins í vor. Að vísu virtust íhaldsmennirnir í JC ekki áfjáðir í að halda því neitt á lofti eins og þetta blogg mitt hérna gerði grein fyrir.
En munið bara að gæðin skipta mestu.
Guðjón Arnar nýr ræðukóngur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2009 | 10:11
Moggarugl
Það veitir mér enga sérstaka gleði að benda á ruglfréttina um mína menn. Í fréttinni segir:
Meistarar Boston Celtics töpuðu í nótt á heimavelli fyrir Houston, 89:85, í NBA-deildinni í körfuknattleik. Þetta mun vera sjötta tap meistaranna á keppnistíðinni og hið fyrsta síðan 14. nóvember. Í millitíðinni hafa leikmenn Boston leikið 19 leiki án taps. Um leið var þetta fyrsta tap Boston-liðsins á heimavelli í vetur.
Þetta er bara della. En ég ætla ekki að fara nánar í það vegna þess að ég skrifa ekki um Celtics þegar illa gengur ;-<
Vill hins vegar góðfúslega benda íþróttafréttamönnum á mbl.is að vinna vinnuna sína.
Meistararnir töpuðu á heimavelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.1.2009 | 10:27
Fyrirsjáanleg kerfisbreyting
Ég hef ekki haft beinar spurnir af þessum fundi í Reykjavík. En mér sýnist á öllu að þarna hafi tekist á fylgjendur Páls Magnússonar annars vegar og svo fylgjendur hinna frambjóðendanna tveggja hins vegar, bæði stuðningsmenn Sigmundar og Höskuldar.
Í Framsóknarflokknum er kerfið þannig að í flestum tilfellum eru fulltrúar á flokksþing valdir á almennum félagsfundum þar sem allir félagsmenn sem mæta hafa atkvæðisrétt. Þarna skapast því oft spenna milli stuðningsmanna mismundandi frambjóðenda sem fjölmenna á fundina og allir vilja komast að sem fulltrúar á flokksþingið. Þetta er ekki æskileg staða.
Í Framsóknarflokknum er nú þegar mikið fylgi við að breyta þessu fyrirkomulagi. Tillaga sem ég og Jóhanna Hreiðarsdóttir lögðum fram (og má finna í skrá sem tengd er við síðustu bloggfærslu mína) snýst um að opna bæði kjördæmisþing og flokksþing þannig að allir flokksmenn geti mætt sem fulltrúar síns félags að því tilskyldu að félagið sé virkt og hafi haldið sinn reglubundna aðalfund. Þetta myndi útrýma þessum átökum á félagsfundum og ég býst mjög við því að þessi tillaga hljóti brautargengi á flokksþinginu. Samband ungra framsóknarmanna hefur þegar breytt lögum um sitt sambandsþing í þessa veru sem hluti af meðvituðu átaki í að auka lýðræði innan flokksins.
Þetta útilokar vitaskuld ekki smölun á þingin sjálf. Tillagan gerir ráð fyrir að framkvæmdastjórn flokksins sé heimilt að leggja á þinggjald og gera greiðslu þess að skilyrði fyrir atkvæðisrétti. Það kynni að draga úr smölun. Páll Magnússon hefur minnst á að rétt sé að taka upp árleg félagsgjöld og gera þau að skilyrði fyrir atkvæðisrétti á þingum flokksins. Það kanna að vera skynsamlegra fyrirkomulag.
Vandinn er sá að því lýðræðislegra sem fyrirkomulagið er, þeim mun opnara er það fyrir því að frambjóðendur reyni að beita fyrir sig fjöldanum. En það er í mínum huga æskilegra heldur en lokaður flokkur þar sem allt er handvalið af fáum útvöldum. Það er ávísun á dauða stjórnmálaflokks.
Hiti á fundi framsóknarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.1.2009 | 15:03
Gleðilegt nýtt ár
Ég hef dvalist í höfuðstaðnum yfir hátíðarnar í góðu yfirlæti hjá tengdó. Hef svo oltið um á milli máltíða hjá mömmu og systkinum. Alveg svakalega ljúft og þægilegt.
Samband við umheiminn hefur verið í algjöru lágmarki. Hef þó aðeins stússað í einu og öðru eins og gengur.
Ég veit ekki hvað árið 2009 mun bera í skauti sér og hef í sannleika sagt sjaldan verið jafn óviss um það. En ég treysti því að það verði gott og skemmtilegt ár.
Ég vil þakka öllum vinum mínum, fólki sem ég hef fyrir hitt og öllu góða fólkinu sem ég vann með á árinu kærlega fyruir hið liðna og óska öllum í heiminum gleðilegs nýs árs.
Mín fyrstu verk á nýju ári voru að leggja fram breytingatillögur við lög Framsóknarflokksins. Þær fylgja hér með í skjölum. Önnur tillagan snýr að formannskjöri, hin að því að heimila öllum félagsmönnum í Framsókn að sækja flokksþing og kjördæmisþing.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.12.2008 | 22:53
Hrikalega er ég merkilegur :o)
Mér fannst skemmtilegt að lesa athugasemd frá Sigurjóni Þórðarsyni fyrrverandi þingmanni við þessa frétt á Eyjunni. Hann hefur greinilega tröllatrú á áhrifum mínum hér eystra. Því miður er jafn mikið að marka þetta og flest allt annað sem frá Sigurjóni kemur. Ég get fullvissað áhugasama lesendur um það að ég stend ekki á bak við áskorun á Sigmund Davíð.
Ég hallast hins vegar að því að þeir eðal-, harðkjarna framsóknarmenn hér eystra sem hafa verið að vinna að þessu hafi nú móðgast pínulítið úr því að einhver heldur að þeir séu ófærir um að véla um formannsframbjóðanda án aðkomu strákkjána á Héraði...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.12.2008 | 00:20
Nei andskotinn nei!
Veist er að manni í miðborginni um hábjartan dag.
Múgurinn klappar!
Ef þetta er orðið ásættanlegt á Íslandi í dag þá segi ég mig úr samfélaginu.
Það á enginn, ég endurtek ENGINN, það skilið að vera laminn á förnum vegi í miðbænum.
Hættið þessari villimennsku.
Veist að Jóni Ásgeiri í miðbænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.12.2008 | 20:43
Mikið óskaplega...
Þorgerður Katrín fær kartöflu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- Febrúar 2012
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
Bloggvinir
- heiddis
- maddaman
- birkir
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- toreybirna
- agnarbragi
- agnesasta
- lubbiklettaskald
- bokakaffid
- davidorn
- einarbb
- einarfreyr
- einarsmaeli
- hjolagarpur
- eyglohardar
- fannygudbjorg
- fufalfred
- gesturgudjonsson
- brekkukotsannall
- neytendatalsmadur
- gladius
- vefmundur
- hugs
- gudrunthora
- gvald
- hallurmagg
- hannibalskvida
- hl
- hreinsamviska
- isk
- johannast
- jonfinnbogason
- skjalfandi
- kristbjorg
- solmundur
- meinhornid
- oddgeire
- olafurjonsson
- ruber
- rosaadalsteinsdottir
- trumal
- salvor
- suf
- sjos
- sigurdurarna
- nr123minskodun
- kaupfelag
- stefanjonsson
- vefritid
- thjodarblomid
- tharason
- thorolfursfinnsson